Það komu tveir Íslendingar við sögu í kvennaboltanum í Skandinavíu í dag þar sem Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann sem lagði Haugesund að velli í efstu deild í Noregi.
Diljá Ýr byrjaði á kantinum í 2-0 sigri þar sem hún lagði fyrsta mark leiksins upp á fyrstu mínútunni.
Diljá lagði upp fyrir Brenna Lovera, fyrrum framherja ÍBV og Selfoss, og innsiglaði hin finnska Emma Peuhkurinen sigurinn með marki í síðari hálfleik.
Brann er á toppi norsku deildarinnar með 13 stig eftir 5 umferðir. Brenna er búin að skora þrjú mörk eftir að hafa sett 13 mörk í 13 deildarleikjum í fyrra.
Í efstu deild í Danmörku lék Hafrún Rakel Halldórsdóttir allan leikinn í sigri Bröndby á útivelli gegn Århus. Lokatölur urðu 0-1 og er Bröndby í öðru sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði HB Köge þegar fimm umferðir eru eftir af tímabilinu.
Hafrún er 23 ára gömul og hefur verið á mála hjá Bröndby í rúmlega tvö ár eftir félagaskipti sín frá Breiðabliki 2024.
Brann 2 - 0 Haugesund
1-0 Brenna Lovera ('1)
2-0 Emma Peuhkurinen ('71)
Aarhus 0 - 1 Bröndby
0-1 Tilde Lindwall ('21)



