Koke, leikmaður Atletico Madrid, er spenntur fyrir undanúrslitaeinvíginu gegn Arsenal í Meistaradeildinni.
Koke, sem er 34 ára, er eini leikmaðurinn í hópnum hjá spænska liðinu sem spilaði bæði í úrslitaleikjunum 2014 og 2016.
Koke, sem er 34 ára, er eini leikmaðurinn í hópnum hjá spænska liðinu sem spilaði bæði í úrslitaleikjunum 2014 og 2016.
„Þegar dagurinn nálgast þá fær maður fiðrildi í magann, eins og maður fær þegar þú átt fyrsta stefnumót með stelpu sem þú ert hrifinn af," segir Koke.
„Svo þegar þú ert kominn í upphitun þá fer þessi tilfinning. Við erum spenntir fyrir því að spila til undanúrslita. Svona leikir ráðast á smáatriðum. Við erum að fara að spila gegn frábæru liði og gæðin verða mikil."
Leikur Atletico Madrid og Arsenal verður á Spáni á morgun klukkan 19:00 en liðin mætast svo aftur í Lundúnum í næstu viku.



