Rizespor 4 - 1 Samsunspor
1-0 Loide Augusto ('39)
2-0 Attila Mocsi ('43)
3-0 Qasim Laci ('45+3)
4-0 Loide Augusto ('50)
4-1 Cherif Ndiaye ('93)
1-0 Loide Augusto ('39)
2-0 Attila Mocsi ('43)
3-0 Qasim Laci ('45+3)
4-0 Loide Augusto ('50)
4-1 Cherif Ndiaye ('93)
Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem steinlá á útivelli gegn Rizespor í eina leik dagsins í efstu deild í Tyrklandi.
Heimamenn í liði Rizespor skoruðu þrjú mörk á níu mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks og innsigluðu þægilegan sigur með fjórða markinu eftir leikhlé.
Samsunspor tókst að minnka muninn með fánamarki í uppbótartíma venjulegs leiktíma, svo lokatölur urðu 4-1.
Allar vonir Samsunspor um að enda í evrópusæti eru því svo gott sem úti þar sem liðið er tíu stigum frá evrópubaráttunni þegar sex umferðir eru eftir. Liðið er þó með í 8-liða úrslitum tyrkneska bikarsins og ætlar að reyna að vinna keppnina til að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni næsta haust.
Loide Augusto og Qasim Laci voru bestu menn vallarins í dag.

