Crystal Palace tók á móti Fiorentina í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld og var Albert Guðmundsson í byrjunarliði gestanna frá Flórens.
Palace var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleiknum og náði forystunni þegar Dodo var dæmdur brotlegur fyrir tæklingu innan vítateigs. Dómurinn er afar umdeildur þar sem marktilraun Evann Guessand var á leið langt framhjá þegar hann var straujaður niður innan teigs.
Jean-Philippe Mateta skoraði úr vítinu og tvöfaldaði Tyrick Mitchell forystuna skömmu síðar þegar hann fylgdi góðri marktilraun Mateta eftir með marki af stuttu færi.
Staðan var því 2-0 í leikhlé og var seinni hálfleikurinn jafnari. Ítalirnir áttu skot í slá en komust ekki nær því að minnka muninn. Það stefndi allt í 2-0 sigur heimamanna þegar Ismaila Sarr setti þriðja og síðasta mark leiksins með skalla eftir sendingu frá Daichi Kamada á lokamínútunum. Lokatölur 3-0 og er Palace í frábærri stöðu fyrir seinni leikinn, en fjórða markið var afar nálægt því að líta dagsins ljós í uppbótartímanum á Selhurst Park.
Á sama tíma unnu Mainz og Shakhtar Donetsk frábæra sigra á heimavelli. Mainz hafði betur gegn Strasbourg og urðu lokatölur 2-0 eftir tvö mörk snemma leiks. Kaishu Sano náði forystunni með draumamarki á 11. mínútu áður en varnarmaðurinn Stefan Posch tvöfaldaði forystuna nokkrum mínútum síðar.
Valentín Barco, Julio Enciso og félagar í liði Strasbourg voru lakari aðilinn í spennandi slag. Þeir komust nálægt því að minnka muninn en heimamenn í Mainz komust enn nær því að setja þriðja markið, sem leit þó aldrei dagsins ljós.
Shakhtar gerði sér þá lítið fyrir og setti þrjú mörk gegn AZ Alkmaar. Mörkin komu á ellefu mínútna kafla undir lok leiksins eftir að mikið jafnræði hafði ríkt með liðunum í bragðdaufum slag.
Palace, Mainz og Shakhtar eru því í frábærri stöðu fyrir seinni viðureignirnar sem verða þó á útivelli.
Crystal Palace 3 - 0 Fiorentina
1-0 Jean-Philippe Mateta ('24 , víti)
2-0 Tyrick Mitchell ('31 )
3-0 Ismaila Sarr ('90 )
Shakhtar D 3 - 0 AZ Alkmaar
1-0 Pedrinho ('72 )
2-0 Alisson ('81 )
3-0 Alisson ('83 )
Mainz 2 - 0 Strasbourg
1-0 Kaishu Sano ('11 )
2-0 Stefan Posch ('19 )

