Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   fim 09. apríl 2026 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19: Ísland betra liðið í fyrsta leik
Kvenaboltinn
Edith skoraði mark Íslands í dag.
Edith skoraði mark Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarliðið í leiknum.
Byrjunarliðið í leiknum.
Mynd: KSÍ
Ísland 1 - 1 Finnland
0-1 Helmi Kumpulainen ('61)
1-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('66)

Íslenska U19 landsliðið mætti Finnlandi í fyrsta leik millirðils í undankeppni fyrir EM í sumar. Riðilinn er spilaður í Serbíu.

Miðað við tölfræðina var íslenska liðið betra liðið í leiknum en íslenska liðið náði m.a. sjö skotum á mark þeirra finnsku en Finnar áttu einungis eina tilraun á íslenska markið.

Finnar komust yfir á 61. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði Edith Krístín Kristjánsdóttir, leikmaður Breiðabliks, metin eftir undirbúning frá Berglindi Freyju Hlynsdóttur og Freyju Stefánsdóttur.

Danmörk og Serbía mætast í hinum leik riðilsins í dag og er staðan 0-0 í hálfleik. Ísland mætir næst Danmörku á sunnudag og hefst sá leikur kl. 09:00 að íslenskum tíma.


Slapp
banner
banner