Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   fim 09. apríl 2026 13:43
Elvar Geir Magnússon
West Ham endurheimtir leikmenn
Crysencio Summerville hefur verið einn allra ljósasti punkturinn hjá West Ham.
Crysencio Summerville hefur verið einn allra ljósasti punkturinn hjá West Ham.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin fer aftur í gang annað kvöld þegar West Ham tekur á móti Wolves í mikilvægum fallbaráttuslag. Úlfarnir eru sem fyrr neðstir en Hamrarnir eru einnig í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

Nuno Espirito Santo greindi frá því á fréttamannafundi að hann væri bjartsýnn á að Crysencio Summerville, Jean-Clair Todibo og Callum Wilson yrðu allir leikfærir.

Summerville hefur skorað sjö mörk í síðustu ellefu leikjum en hefur verið frá vegna kálfameiðsla.

Þá er varnarmaðurinn Dinos Mavropanos klár í slaginn en hann fékk höfuðhögg í síðasta leik og Aaron Wan-Bissaka er mættur aftur úr landsliðsverkefni.

Hjá Úlfunum eru varnarmaðurinn Matt Doherty og markvörðurinn Sam Johnstone báðir meiddir en sá síðarnefndi verður mögulega ekki meira með á tímabilinu.

föstudagur 10. apríl
19:00 West Ham - Wolves
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner
banner