Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Maguire lofsamar Carrick - „Úrslitin tala sínu máli“
Harry Maguire talar vel um Carrick
Harry Maguire talar vel um Carrick
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Harry Maguire ljómaði allur eftir 2-1 sigur Manchester United á Brentford í kvöld, en hann segir að MIchael Carrick hafi komið með ferska vinda og átt stóran þátt í að koma liðinu upp töfluna.

Carrick tók við keflinu af Ruben Amorim sem var rekinn í byrjun árs, en síðan þá hefur United-liðið verið á eldi og er nú aðeins einum sigri frá því að tryggja Meistaradeildarsæti.

Maguire hrósaði Carrick í hástert fyrir það sem hann hefur gert á stuttum tíma og virðist styðja það að hann taki við liðinu til frambúðar.

„Úrslitin hjálpa rosalega mikið til við þá tilfinningu. Við fengum tvo erfiða leiki þegar Michael tók fyrst við og ég held að allir hafi horft á þá leiki og hugsað: 'Ó, nei', gegn Arsenal og Man City, en við náðum í sex stig þar.“

„Allir höfðu trú á þessu og við þjöppuðum okkur saman. Við fundum sjálfstraustið og vitum að við getum skorað mörkin úr hvaða stöðu sem er. Mér finnst við enn geta bætt okkur í þessu leikkerfi og unnið sem varnarlína, fært okkur hraðar yfir völlinn eins og við áttum að gera.“

„Úrslitin tala sínu máli síðan stjórinn kom inn og síðan hann breytti leikkerfinu. Við erum að ná í úrslit, en áður þegar Ruben var hér voru leikirnir 50-50, en við enduðum samt alltaf á því að tapa.“

„Þetta virðist hafa snúist við þar sem við erum betri í báðum teigum, verjum okkar teig betur og erum skilvirkir hinum megin á vellinum,“
sagði Maguire.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner