Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
   fös 10. apríl 2026 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Fagnað í vítaspyrnukeppninni gegn Grindavík á mánudag. Ásgeir átti góðan leik í bikarnum.
Fagnað í vítaspyrnukeppninni gegn Grindavík á mánudag. Ásgeir átti góðan leik í bikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vel varið.
Vel varið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu, við búumst við því að þetta verði erfitt og erum tilbúnir í slaginn," segir Ásgeir Orri Magnússon (2004), markvörður Keflavíkur, við Fótbolta.net.

Keflavík er nýliði í Bestu deildinni eftir að hafa komið upp úr Lengjudeildinni í gegnum umspilið í fyrra. Keflvíkingum er af langflestum spáð falli á komandi tímabili.

„Það kemur mér svo sem ekkert á óvart, við erum að koma upp og það er nokkuð eðlilegt að okkur sé spáð falli. Manni er sama hverju er spáð, við erum mættir til að taka þátt í mótinu og sýna að þeir sem eru að spá hafa rangt fyrir sér."

„Markmiðið fyrst og fremst er að halda okkur í deildinni."


Ásgeir Orri spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild 2023 undir lok tímabilsins og var svo aðalmarkvörður Keflavíkur sumarið 2024 í Lengjudeildinni. „Ég spilaði tvo leiki 2023, það voru skemmtilegir tveir leikir. Ég fékk tvö víti á mig og eitt gult spjald á mig í fyrsta leiknum. Ég fékk svo '24 í Lengjudeildinni. Ég er bara tilbúinn í slaginn."

Ásgeir lék ekki í fyrra þar sem hann sleit krossband skömmu fyrir mót.

„Endurhæfingin var nokkuð erfið, reyndi alveg nokkuð á andlega. Þetta voru erfiðir átta mánuðir, en ég er loksins kominn aftur á völlinn og ég er tilbúinn."

„Ég tók einhverja heimskulega ákvörðun og fór í skallabolta vel fyrir utan teiginn, ég lenti beint á hnénu og krossbandið slitnaði."

„Það var dálítið erfitt andlega að fylgjast með í fyrra, mig langaði að vera með."


Þakklátur fyrir traustið
Ásgeir Orri er yngsti aðalmarkvörður deildarinnar. Hvernig er að fá traustið?

„Ég vissi ekki að ég væri yngstur, það er bara geðveikt. Ég þakka Keflavík fyrir traustið, er mjög þakklátur. Maður er meira spenntur en stressaður."

Eftir tímabilið 2025, vissi Ásgeir að hann yrði aðalmarkvörður liðsins á næsta tímabili?

„Það var ekkert skýrt að ég yrði aðalmarkvörður. Ég horfði auðvitað bara á þetta sem samkeppni milli mín og Sindra (Kristins Ólafssonar)."

Keflavík heimsækir Meistaravelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag. „Skemmtilegt að mæta í stemningu í fyrsta leik á Meistaravöllum," segir Ásgeir sem er með það á bakvið eyrað að góð frammistaða í sumar gæti komið honum í U21 landsliðið.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner