Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 09:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Stjarnan endurheimtir lykilmenn fyrir kvöldið - „Höfum saknað hans rosalega mikið"
Örvar Eggertsson er klár í slaginn.
Örvar Eggertsson er klár í slaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Þór er ekki orðinn 100%.
Alex Þór er ekki orðinn 100%.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Örvar Eggertsson, Benedikt Warén, Andri Rúnar Bjarnason og Heiðar Ægisson eru klárir í slaginn fyrir leik Stjörnunnar gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum í bikarnum í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Hann verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

„Andri Rúnar er orðinn heill, Heiðar er orðinn heill eftir að hafa verið frá í svolítinn tíma, og Örvar Eggerts og Benó eru klárir. Það munar um minna," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, við Fótbolta.net.

„Það er rosa erfitt að segja til með Alex Þór Hauksson, það hafa verið þrálát meiðsli og við höfum saknað hans rosalega mikið í sumar að mjög mörgu leyti. Vonandi verður hann klár eftir um tvær vikur, en það er mjög erfitt að segja. Þetta eru meiðsli í vöðvafestingu sem hafa verið þrálát, við höfum reynt að keyra hann upp mörgum sinnum, núna erum við að reyna gefa þessu þann tíma sem þarf svo hann verði heill þegar hann kemur til baka. Það lítur vel út í dag og við leyfum okkur að vera bjartsýnir. Andlegi hlutinn á þessum meiðslum má kannski ekki endilega við bakslagi, þá er betra að hann komi nokkrum dögum seinna inn og þá klár."

Þeir Daníel Finns Matthíasson og Jóhann Árni Gunnarsson taka út leikbann.

„Við erum menn til að leysa það. Það verða færri úr 3. flokki í hóp í leiknum. Við getum ekki vælt neitt yfir stöðunni á hópnum fyrir þennan leik - ekki það að við höfum vælt yfir henni til þessa. Við erum að komast á þolanlegan stað með að vera með fullorðna menn til taks sem er gott. Þó að við missum Jóa og Danna þá held ég að það séu allir mjög brattir með liðið og hópinn og spenntir fyrir leiknum," segir Jökull.
Slapp
banner