Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 19:48
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Börsungar unnu borgarslaginn örugglega - Rashford með laglegt mark
Marcus Rashford og Lamine Yamal fagna gegn Espanyol í kvöld
Marcus Rashford og Lamine Yamal fagna gegn Espanyol í kvöld
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona færast nær því að verja titilinn eftir að hafa unnið nágranna sína í Espanyol, 4-1, á Camp Nou í Barcelona í kvöld.

Real Madrid tapaði stigum gegn Girona í gær og nýttu Börsungar það sér til fulls með því að vinna granna sína þægilega.

Ferran Torres kom þeim í 2-0 forystu á 25 mínútum en bæði mörkin komu eftir undirbúning frá Lamine Yamal. Í fyrra markinu stangaði Ferran boltanum í netið eftir hornspyrnu Yamal og í seinna stakk spænski táningurinn boltanum skemmtilega inn fyrir á framherjann sem potaði honum framhjá markverði Espanyol og í netið.

Pol Lozano kom Espanyol aftur inn í leikinn á 56. mínútu er hann skoraði með föstu skoti úr teignum en nokkrum mínútum áður hafði VAR tekið þriðja markið af Ferran vegna rangstöðu.

Barcelona var líklegra eftir markið hjá Espanyol og náði að ganga frá leiknum undir lokin. Yamal gerði þriðja markið er Marc Casado átti Rabona-spyrnu inn fyrir vörnina. Marko Dmitrovic, markvörður Espanyol, leit út fyrir að vera með allt upp á tíu, en tapaði einvíginu gegn Yamal, sem byrjaði að fagna áður en hann skaut boltanum í netið.

Marcus Rashford rak síðasta naglann í kistu Espanyol nokkrum mínútum síðar. Frenkie de Jong var inn á teignum, lyfti honum á fjær á Rashford sem teygði út löppina og stýrði honum í fjærhornið.

Frábært mark hjá Rashford og er Barcelona nú skrefi nær titlinum en liðið er á toppnum með níu stiga forystu þegar sjö umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Elche 1 - 0 Valencia
1-0 Lucas Cepeda ('73 )

Barcelona 4 - 1 Espanyol
1-0 Ferran Torres ('9 )
2-0 Ferran Torres ('25 )
2-1 Pol Lozano ('56 )
3-1 Lamine Yamal ('87 )
4-1 Marcus Rashford ('89 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner