Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 23:08
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Skoraði sjálfsmark og fékk rautt spjald í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorlákur 2 - 3 Uppsveitir
0-1 Reynir Ingi Helgason ('39 )
0-2 Teitur Snær Vignisson ('52 )
0-3 Jaime Riveriego Fernandez ('70 )
1-3 Sölvi Freyr Freydísarson ('81, sjálfsmark)
2-3 Karl Viðar Magnússon ('94)
Rautt spjald: Sölvi Freyr Freydísarson, Uppsveitir ('84)

Það fór einn leikur fram í 5. deildinni í kvöld þegar Þorlákur tók á móti Uppsveitum í fyrstu umferð deildartímabilsins.

Uppsveitir komust í þriggja marka forystu þökk sé mörkum frá Reyni Inga Helgasyni, Teiti Snæ Vignissyni og Jaime Riveriego Fernández en heimamenn gáfust ekki upp.

Þeir minnkuðu muninn þegar Sölvi Freyr Freydísarson skoraði sjálfsmark á 81. mínútu og þremur mínútum síðar var Sölvi Freyr rekinn af velli.

Karl Viðar Magnússon náði að minnka muninn niður í eitt mark en nær komst Þorlákur ekki, svo lokatölur urðu 2-3 fyrir gestina.
Slapp
banner
banner
banner