Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 17:56
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Tottenham og Leeds: De Zerbi breytir engu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur og Leeds United mætast í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir Tottenham þar sem liðið getur svo gott sem bjargað sér frá falli með sigri. Tottenham er í harðri fallbaráttu við West Ham United á lokametrum tímabilsins.

Lærlingar Roberto De Zerbi eru einu stigi fyrir ofan Hamrana og eiga leikinn í kvöld til góða. Takist þeim að sigra þá fara þeir í fjögurra stiga forystu þegar tvær umferðir eru eftir.

De Zerbi mætir til leiks með óbreytt byrjunarlið frá fræknum sigri á útivelli gegn Aston Villa í síðustu umferð.

Daniel Farke þjálfari Leeds gerir tvær breytingar eftir sigur gegn Burnley í síðustu umferð. Brendan Aaronson og Daniel James koma inn í byrjunarliðið fyrir Noah Okafor og Jayden Bogle sem eru að glíma við meiðsli.

Tottenham: Kinsky, Porro, Danso, Van de Ven, Udogie, Palhinha, Gallagher, Bentancur, Tel, Kolo Muani, Richarlison.
Varamenn: Austin, Dragusin, Bissouma, Maddison, Gray, Bergvall, Spence, Sarr, Souza.

Leeds: Darlow, Rodon, Bijol, Struijk, Justin, Ampadu, Tanaka, James, Aaronson, Stach, Calvert-Lewin
Varamenn: Perri, Byram, Lienou, Bornauw, Longstaff, Chadwick, Gnonto, Piroe, Nmecha
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner