Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 21:19
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Belloumi kom Hull í úrslitaleikinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Millwall 0 - 2 Hull City
0-1 Mohamed Belloumi ('64 )
0-2 Joe Gelhardt ('79 )

Hull City er búið að tryggja sér farmiða í úrslitaleik umspils Championship deildarinnar eftir sigur á útivelli gegn Millwall í kvöld.

Staðan var markalaus í fyrri leiknum í Hull og hélst hún áfram markalaus í fyrri hálfleiknum í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn þar sem heimamenn í Millwall komust nær því að skora, en leikmenn Hull spiluðu frábæran seinni hálfleik og tryggðu sér dýrmætan sigur.

Mohamed Belloumi byrjaði leikinn á bekknum en var skipt inn þegar Kyle Joseph meiddist í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Belloumi náði forystunni fyrir Hull með glæsilegu einstaklingsframtaki á 64. mínútu.

Boltinn barst til hans á hægri kantinum og gerði Belloumi frábærlega að skora úr þröngu færi með varnarmann í sér.

Joe Gelhardt, lánsmaður frá Leeds United, tvöfaldaði forystuna stundarfjórðungi síðar með marki eftir skyndisókn og aftur lék Belloumi lykilhlutverk.

Belloumi vann boltann í tvígang af andstæðingum sínum, hljóp hálfan völlinn og gaf frábæra stoðsendingu á Gelhardt sem náði að renna boltanum í netið.

Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 0-2. Hull mætir annað hvort Southampton eða Middlesbrough í úrslitaleik umspilsins.
Slapp
banner
banner
banner