Spænski kantmaðurinn Nico Williams fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 0-1 tapi Athletic Bilbao gegn Valencia í spænsku deildinni í gær.
Búist er við að Williams missi af síðustu leikjum deildartímabilsins og eru Spánverjar smeykir um að hann missi einnig af heimsmeistaramótinu í sumar.
Spánn, sem er ríkjandi Evrópumeistari, mætir til leiks gegn Grænhöfðaeyjum 15. júní og er einnig með Sádi-Arabíu og Úrúgvæ í riðli.
Viðbrögð Nico Williams á vellinum boðuðu ekki gott þegar hann lá í jörðinni og sást endurtaka orðin „þetta getur ekki verið, þetta getur ekki verið.".
Meiðslin virtust í fyrstu vera einföld vöðvameiðsli en Inaki Williams, eldri bróðir Nico, sagði í viðtali að leikslokum að bróðir sinn hafi „aldrei fundið fyrir svona sársauka áður."
Spánverjar bíða því spenntir eftir niðurstöðum frá læknateymi Athletic þar sem Williams reyndist algjör lykilmaður er Spánn varð Evrópumeistari 2024. Williams og Lamine Yamal skinu skært á því móti en Yamal er einnig að glíma við meiðsli þessa dagana.
Williams er 23 ára gamall og hefur ekki átt sérlega gott tímabil með Athletic þar sem hann er með 6 mörk og 7 stoðsendingar í 32 leikjum á leiktíð sem hefur einkennst af meiðslavandræðum.
27.01.2026 16:30
HM í hættu hjá Williams?



