Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Slot: Áhorfendur vita ekki hvað liggur að baki ákvarðana
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arne Slot svaraði spurningum eftir jafntefli Liverpool gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina og var meðal annars spurður út í skiptinguna á táningnum Rio Ngumoha.

Ngumoha hafði verið einn af líflegri leikmönnum í sóknarlínu Liverpool þegar honum var skipt af velli fyrir Alexander Isak á 67. mínútu.

Áhorfendur bauluðu á skiptinguna þar sem þeir vildu sjá Ngumoha spila lengur.

„Hann var byrjaður að finna fyrir vöðvameiðslum og leið ekki mjög vel. Hann sagðist ekki vera viss hvort hann gæti haldið áfram og því tók ég hann útaf til að fyrirbyggja vöðvameiðsli. Áhorfendur vita oft ekki hvað liggur að baki ákvarðana en ég er stjórinn og ég þarf að taka ákvarðanirnar. Ekki áhorfendurnir," sagði Slot meðal annars eftir lokaflautið.

„Baulin að leikslokum eru líklega útaf því að við unnum ekki. Við gerðum jafntefli. Síðustu fimm leiki erum við með þrjá sigra, eitt tap og núna eitt jafntefli. Það er ekki nógu gott, við viljum gera betur. Við vildum vinna alla fimm leikina en okkur tókst það ekki.

„Ég vildi óska þess að við hefðum getað sýnt stuðningsmönnum meira á þessu tímabili en við gátum það ekki. Allir innan félagsins þrá að ná meiri árangri og gleðja stuðningsmenn."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner