Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 11. maí 2026 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: 39 ára Stuani bjargaði stigi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rayo Vallecano 1 - 1 Girona
1-0 Alemao ('86 )
1-1 Cristhian Stuani ('90 )

Rayo Vallecano og Girona áttust við í mikilvægum slag á lokakafla spænska deildartímabilsins og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.

Það var lítið um færi í lokuðum leik en heimamönnum í liði Rayo Vallecano tókst að ná forystunni á 86. mínútu þegar Alemao skoraði gott mark úr erfiðu færi.

Unai López lét vaða með föstu skoti utan vítateigs sem var á leið í bláhornið, en Alemao náði að pota fæti í boltann til að láta hann breyta um stefnu og varð marktilraunin gjörsamlega óverjandi fyrir Paulo Gazzaniga.

Sigur hefði komið Vallecano upp í dýrmætt sjöunda sæti spænsku deildarinnar en hinn 39 ára gamli Cristhian Stuani gerði jöfnunarmark skömmu síðar með skalla eftir hornspyrnu á 90. mínútu.

Lokatölur urðu 1-1 og því bjargaði Stuani dýrmætu stigi fyrir Girona.

Nú eru þrjár umferðir eftir af spænska deildartímabilinu og er Girona aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner
banner