Stutt er í heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og öll landsliðin þegar hafið undirbúning en það verða nokkrir vináttulandsleikir á dagskrá í dag.
Noregur og Svíþjóð mætast í Skandinavíu-slag klukkan 17:00 á Ullevaal-leikvanginum í Osló.
Tyrkland spilar við Norður Makedóníu og þá mun Austurríki mæta Túnis. Kólumbía og Kosta Ríka eigast þá við klukkan 23:00 í kvöld.
Leikir dagsins:
16:30 Tyrkland - Norður Makedónía
17:00 Noregur - Svíþjóð
18:45 Austurríki - Túnis
23:00 Kólumbía - Kosta Ríka
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



