Það fóru tveir leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem fyrrum stjörnur evrópska fótboltans skinu skært.
Ivan Toney og Roger Ibanez skoruðu mörkin í sigri Al-Ahli á útivelli gegn Al-Taawon þar sem lokatölur urðu 1-2.
Matteo Dams og Riyad Mahrez áttu stoðsendingarnar og skoraði Angelo Fulgini eina mark heimamanna í tapinu.
Al-Ahli siglir lygnan sjó í þriðja sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir á meðan Al-Taawon er í harðri baráttu um síðasta meistaradeildarsætið.
Merih Demiral, Enzo Millot og Valentin Atangana voru einnig meðal byrjunarliðsmanna Al-Ahli.
Í hinum leik dagsins hafði Neom betur gegn Al-Shabab þökk sé tvennu frá Saïd Benrahma sem skoraði bæði mörkin úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik.
Yannick Carrasco minnkaði muninn fyrir Al-Shabab í síðari hálfleik eftir undirbúning frá Yacine Adli en nær komust gestirnir ekki, svo lokatölur urðu 2-1.
Neom siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar, fimm stigum frá sæti í álfukeppni, á meðan Al-Shabab siglir lygnan sjó í neðri hlutanum - sex stigum frá fallsæti.
Alexandre Lacazette, Josh Brownhill, Wesley Hoedt, Marcin Bulka og Ahmed Hegazy voru einnig meðal byrjunarliðsmanna í þessum slag.
Al-Taawon 1 - 2 Al-Ahli
0-1 Ivan Toney ('17)
1-1 Angelo Fulgini ('55)
1-2 Roger Ibanez ('79)
Neom 2 - 1 Al-Shabab
1-0 Said Benrahma ('19)
2-0 Said Benrahma ('45)
2-1 Yannick Carrasco ('78)


