Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 16:18
Elvar Geir Magnússon
Bjórsala á leikjum heimil að uppfylltum skilyrðum
Vallargestir geta skálað.
Vallargestir geta skálað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Borgarráð samþykkti í dag tillögur stýrihóps um að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði séu heimilar að uppfyllum ákveðnum skilyrðum.

Talsverð umræða var á síðasta tímabili í íslenska boltanum um áfengissölu á leikjum og lögreglan fundaði með félögum.

Í tillögunum sem voru samþykktar í dag eru skilyrði meðal annars þau að áfengisveitingar skuli einungis heimilaðar á íþróttaviðburðum þar sem ekki er um að ræða keppni eða mót barna og ungmenna undir 18 ára aldri.

Leyfið skal nær einungis til sölu á áfengu öli og léttu víni. Þá kemur fram að salan fari aðeins fram á sérstöku afmörkuðu svæði. Óheimilt er að selja eða neyta áfengra drykkja á áhorfendasvæðum öðrum en þeim sem sérstaklega eru skilgreind til slíkrar notkunar.

Samráð í ferli stýrihópsins var mjög víðtækt og leitað til fjölmargra hagsmunaaðila. Haldinn var samráðs- og kynningarfundur þar sem félögum sem eru með lið í efstu deildum á höfuðborgarsvæðinu var boðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner