16-liða úrslit Mjólkurbikarsins verða leikin í vikunni, á morgun og fimmtudaginn. Leikirnir verða sýndir beint í opinni dagskrá á RÚV 2 og hjá Livey.
Umferðin hefst með áhugaverðum leik í Laugardal þar sem topplið Þróttar í Lengjudeildinni fær Breiðablik í heimsókn. Meðal annarra leikja annað kvöld er stórleikur Stjörnunnar og KR en Vesturbæingar unnu endurkomusigur þegar liðin áttust við síðasta föstudag í Bestu deildinni.
Uppstigningardagur er á fimmtudag og þá verða þrír leikir. Þar á meðal er viðureign ríkjandi bikarmeistara Vestra gegn Gróttu og þá leika Fylkir og FH þar sem Heimir Guðjónsson fær gesti sem hann þekkir ansi vel.

miðvikudagur 13. maí
RÚV2 17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)
Livey 19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn)
Livey 19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá)
Livey 19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn)
RÚV2 20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
fimmtudagur 14. maí
Livey 14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
Livey 14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
RÚV2 15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
RÚV2 16:55 Bikarmörkin