Manchester United hefur aukið áhuga sinn á miðjumönnunum Ederson og Mateus Fernandes. Sky Sports greinir frá þessu í dag.
Man Utd vill fá að minnsta kosti tvo miðjumenn í sumarglugganum en liðið er að ræða við nokkra leikmenn á óskalistanum.
Elliot Anderson, leikmaður Nottingham Forest, er efstur á listanum, en það eru miklar likur á því að hann fari til Manchester City og eru því næstu menn þeir Ederson, leikmaður Atalanta og Fernandes, leikmaður West Ham.
Ederson, sem virtist vera á leið til Atlético Madríd, mun líklega ekki fara þangað eftir að Atlético ákvað að fara í viðræður við samlanda hans, Joao Gomes, sem er á mála hjá Wolves.
Sky Sports segir Man Utd í viðræðum, en að félagið hafi ekki náð samkomulagi um kaup og kjör til þessa. Fernandes hefur einnig heillað United með frammistöðunni með West Ham.
Ef West Ham fellur úr úrvalsdeildinni þá munu Hamrarnir vera reiðubúnir að selja hann á lægra verði.
Carlos Baleba, leikmaður Brighton, er annar leikmaður sem United hefur lengi haft áhuga á. Það reyndi að fá hann síðasta sumar og í janúar. Man Utd vill landa honum fyrir HM, það er að segja ef hann er falur í sumar.



