Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   þri 12. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Mikið undir á spennandi lokakafla
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er gífurlega mikil spenna á lokakafla deildartímabilsins á Spáni og eru þrír leikir á dagskrá í dag og í kvöld.

Það er mikið undir hjá öllum liðunum sem mæta til leiks í dag að undanskildu Atlético Madrid sem siglir lygnan sjó í þriðja sæti.

Celta Vigo og Real Betis eru að berjast um síðasta meistaradeildarsætið eftir að Spánverjar tryggðu sér fimm sæti í Meistaradeildinni með góðum árangri félagsliða sinna í evrópukeppnum.

Betis er með fjögurra stiga forystu á Celta og bæði lið eiga erfiða leiki í dag. Þau eru bæði á heimavelli en taka á móti fallbaráttuliðum Levante og Elche sem munu leggja allt í sölurnar.

Að lokum spilar Osasuna heimaleik við Atlético og er mikið undir fyrir Osasuna sem er aðeins þremur stigum frá sæti í Sambandsdeildinni þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu.

Leikir dagsins
17:00 Celta Vigo - Levante
18:00 Real Betis - Elche
19:30 Osasuna - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner