Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 15:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Skoraði í fyrsta leik sínum í Bestu - Fékk tveggja mínútna viðvörun
Jakob Héðinn í leiknum gegn Stjörnunni.
Jakob Héðinn í leiknum gegn Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jakob Héðinn kom í KA frá Völsungi í vetur.
Jakob Héðinn kom í KA frá Völsungi í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
'Mér fannst við heilt yfir spila mjög vel og eiga meira skilið úr þessum leik'
'Mér fannst við heilt yfir spila mjög vel og eiga meira skilið úr þessum leik'
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
'Það hjálpar gríðarlega að hafa svona stuðning á bakvið mann'
'Það hjálpar gríðarlega að hafa svona stuðning á bakvið mann'
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jakob Héðinn Róbertsson (2005) spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild á sunnudag þegar hann kom óvænt inn í byrjunarlið KA fyrir leikinn gegn Stjörnunni. Jakob Héðinn átti að byrja á bekknum en nafni hans, Jakob Snær Árnason, fann fyrir stífleika og ákveðið var í upphituninni að Jakob Héðinn kæmi inn í liðið.

Hann skoraði annað mark KA í leiknum en það dugði ekki til því Stjarnan van 2-3 sigur á Greifavellinum. Jakob Héðinn ræddi við Fótbolta.net um leikinn á sunnudag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  3 Stjarnan

„Það var bara geggjað að spila fyrsta leikinn í Bestu deildinni. Ég var búinn að bíða í allan vetur eftir að þetta myndi byrja og var ánægður þegar það var loksins komið að þessu, sérstaklega að fá að byrja," segir Jakob Héðinn.

Fékk tveggja mínútna viðvörun
En hvernig komst hann að því að hann myndi byrja?

„Ég fæ bara að vita á meðan við erum í upphitun að Kobbi sé eitthvað tæpur þannig að ég ætti að vera klár og síðan bara tveimur mínútum seinna þá er mér sagt að hann geti ekki spilað og ég myndi byrja - sem ég var bara spenntur fyrir. Hugsunin mín breyttist ekkert þegar þetta gerðist, ég ætlaði bara að gera mitt besta með þær mínútur sem ég fengi."

Fannst KA eiga skilið meira úr leiknum
Hvernig metur þú frammistöðu liðsins og eigin frammistöðu?

„Mér fannst við heilt yfir spila mjög vel og eiga meira skilið úr þessum leik en ég er ekkert að taka af þessu Stjörnuliði, þeir eru með gott lið og spila góðan bolta."

„Það er nú enginn meira gagnrýninn á mig heldur en ég sjálfur. Mér fannst ég geta gert betur úr færunum mínum en heilt yfir er ég bara nokkuð ánægður."


Gat ekki annað en skorað eftir frábæra sendingu
Getur þú lýst markinu sem þú skoraðir?

„Ég sé bara að við vinnum boltann á miðjunni og geri mig kláran til að hlaupa djúpt. Jeppe sér hlaupið og kemur með frábæran bolta í gegn og þá get ég eiginlega ekki gert annað en að skora."

Bara krampi, engin tognun
Jakob Héðinn fór af velli í leiknum. Var það vegna meiðsla?

„Nei nei, ég fékk bara slæman krampa en er orðinn góður í dag."

Kallar ekki sjálfur eftir víti
Það voru einhverjir sem kölluðu eftir því að Jakob Héðinn fengi vítaspyrnu í leiknum. Hvað fannst honum?

Nei, sennilegast ekki. Mér fannst dómararnir bara heilt yfir fínir í þessum leik fyrir utan náttúrulega markið sem er tekið af okkur en það gerist bara og við verðum að halda áfram með það."

Spenntur að mæta Íslandsmeisturunum
Hvernig leggst leikurinn gegn Víkingi á föstudag í þig?

„Ég er bara gríðarlega spenntur fyrir þeim leik og vona að stuðningsmenn mæti eins og þeir gerðu í fyrsta leik því þeir voru fáránlega góðir og það hjálpar gríðarlega að hafa svona stuðning á bakvið mann," segir Jakob Héðinn.
Slapp
banner
banner