Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
banner
   mán 13. apríl 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jakob kom inn fyrir Jakob eftir upphitun
Jakob Héðinn kom inn í lið KA.
Jakob Héðinn kom inn í lið KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA gerði breytingu á sínu byrjunarliði fyrir leik þar sem Jakob Snær Árnason gat ekki byrjað leikinn og í hann stað kom inn Jakob Héðinn Róbertsson.

Jakob Snær er að koma til baka eftir að hafa slitið hásin um mitt síðasta sumar og er að ná fullum styrk. Hann fann fyrir stífleika í nára í upphitun og engir sénsar voru teknir.

Barðdælingurinn Jakob Héðinn var að spila sinn fyrsta leik í efstu deild og skoraði seinna mark KA í leiknum; átti góðan sprett eftir sendingu frá Jeppe Pedersen og kom boltanum í netið. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, hrósaði honum í viðtali eftir leik.

Hann er öskufljótur sóknarmaður sem átti mjög gott tímabil með Völsungi á síðasta tímabili. Hann fór svo út af á 64. mínútu vegna meiðsla.
Slapp
banner
banner