Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
   mán 15. október 2018 21:45
Egill Sigfússon
Jói Berg: Ætlum á EM en þá þurfum við að vinna leiki
Icelandair
Jói í leiknum í kvöld
Jói í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tapaði 2-1 fyrir Sviss í Þjóðardeild UEFA á Laugardalsvelli í kvöld. Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður liðsins sagði það vera mjög svekkjandi að lenda 2-0 undir gegn svona sterku liði og það hafi verið erfitt að ná því forskoti.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Sviss

„Það er svekkjandi að lenda 2-0 undir þar sem við fáum á okkur tvö óþarfa mörk og svo auðvitað kom Alfreð okkur inn með þessu frábæra marki og við pressuðum þá stíft síðustu 10 mínúturnar en það dugði ekki til því miður."

Íslenska liðið sótti stíft síðustu mínúturnar og voru nálægt því að jafna leikinn og Jói sagði að þeir væru hundfúlir með að tapa þessum leik.

„Við vorum ansi nálægt því, við fengum frábæra sénsa og markmaðurinn gerði vel í að halda boltanum úr netinu en í lok dags þá töpum við leiknum og það er bara hundfúlt."

Jói segir markmiðið skýrt, þeir ætla sér að komast á Evrópumótið 2020 en nú verði liðið að byggja á þessar frammistöður í síðustu tveim leikjum og fara að vinna leiki.

„Nú er markmiðið að komast á næsta Evrópumót, frammistaðan er orðin miklu betri og við verðum að byggja ofan á það með að fara að vinna leiki. Við ætlum okkur að komast á EM 2020 en til þess að gera það þurfum við auðvitað að fara vinna leiki."
Slapp
Athugasemdir
banner