Það mynduðust skemmtilegar umræður í Enski boltinn hlaðvarpinu í gær og meðal annars í lokin þegar rætt var um það hvaða Íslendingar væru næstir til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Einn íslenskur leikmaður er í ensku úrvalsdeildinni í dag en það er Hákon Rafn Valdimarsson, varamarkvörður Brentford.
Einn íslenskur leikmaður er í ensku úrvalsdeildinni í dag en það er Hákon Rafn Valdimarsson, varamarkvörður Brentford.
Það komu tvö nöfn upp í hugann á gestum þáttarins.
„Þetta er handrit sem er búið að skrifa í hlaðvörpum landsins undanfarin ár; Hákon Haraldsson í Tottenham," sagði Hörður Ágústsson, stuðningsmaður Tottenham. „Ég væri rosa mikið til í að sjá hann í Premier League. Það væri frábært fyrir hann að fara í sumar."
Hákon er í dag leikmaður Lille í Frakklandi og þar hefur hann tekið góð skref fram á við.
„Brentford selur Igor Thiago, gæti ekki Orri Steinn komið þangað inn?" sagði Einar Guðnason.
„Orri og Hákon eru þeir einu tveir sem eiga raunhæfan möguleika," sagði Magnús Haukur Harðarson.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilurunum hér fyrir neðan. Einnig er hægt að horfa á þáttinn á Youtube en Enski boltinn var í fyrsta sinn í mynd í gær.
Athugasemdir




