Kylian Mbappe hefur misst af síðustu fimm leikjum Real Madrid vegna meiðsla. Liðið hefur verið í vandræðum á tímabilinu en Real hefur unnið fjóra af fimm leikjum án franska sóknarmannsins.
Real Madrid er með 3-0 forystu gegn Man City fyrir seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en seinni leikurinn fer fram á Etihad vellinum í Manchester á morgun.
Real Madrid er með 3-0 forystu gegn Man City fyrir seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en seinni leikurinn fer fram á Etihad vellinum í Manchester á morgun.
Mbappe er í leikmannahópnum en margir telja að liðið hafi spilað betur án hans.
„Fólk segir að við séum betri án Mbappé? Það er erfitt að hugsa sér að Real Madrid sé betra án besta leikmanns í heimi! En það segir sitt um liðið og hversu vel þeim gengur," sagði Alvaro Arbeloa, bráðabirgðastjóri Real Madrid.
Athugasemdir



