Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 07:10
Elvar Geir Magnússon
Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga
Powerade
Elliot Anderson (lengst til hægri).
Elliot Anderson (lengst til hægri).
Mynd: EPA
Eduardo Camavinga til Liverpool?
Eduardo Camavinga til Liverpool?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þýskalandsmeistararnir blanda sér í baráttu við Manchester United, Liverpool hefur áhuga á miðjumanni Real Madrid, framtíð leikmanna Arsenal er í óvissu og Rogers vill Meistaradeildarbolta. Slúðurpakkinn dömur og herrar.

Manchester United mun fá samkeppni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München um Elliot Anderson (23), miðjumann Nottingham Forest og enska landsliðsins. (Mail)

Liverpool hefur áhuga á því að fá franska miðjumanninn Eduardo Camavinga (23) frá Real Madrid í sumar. (Football Insider)

Framtíð brasilíska vængmannsins Gabriel Martinelli (24) hjá Arsenal er í óvissu. Sama gildir um stöðu enska vinstri bakvarðarins Myles Lewis-Skelly (19) og enska vængmannsins (18) Ethan Nwaneri. (Times)

Newcastle óttast að dragast inn í aðra Alexander Isak sögu með ítalska miðjumanninn Sandro Tonali (25) sem er orðaður við 100 milljóna punda sölu til Manchester United, Manchester City, Chelsea eða Real Madrid. (The I)

Nathan Ake (31), varnarmaður Manchester City, er á óskalistum AC Milan og Inter en hollenska landsliðsmanninum hefur mistekist að negla niður byrjunarliðssæti á þessu tímabili. (Caughtoffside)

Arsenal hyggst ekki hleypa ítalska varnarmanninum Riccardo Calafiori (23) burt frá félaginu í sumar en vaxandi áhugi er frá ítölskum félögum; þar á meðal Inter, AC Milan, Juventus og Napoli. (Teamtalk)

Juventus er tilbúið að hlusta á tilboð í Jonathan David (26) en West Ham, Tottenham og Nottingham Forest hafa öll áður sýnt kanadíska sóknarmanninum áhuga. (Tuttosport)

Enski vængmaðurinn Morgan Rogers (23) gæti freistast til að leita að Meistaradeildarfótbolta annarstaðar ef Aston Villa nær ekki að komast í keppnina á næsta tímabili. (TalkSport)

Paris St-Germain hefur engar áætlanir um að selja georgíska vængmanninn Khvicha Kvaratskhelia (25) til Arsenal. (Fabrizio Romano)

Juventus vill fá Lorenzo Pellegrini (29), fyrirliða Roma. Samningur sóknarmannsins við Rómverja rennur út eftir tímabilið. (Gazzetta dello Sport)
Athugasemdir
banner