Newcastle heimsækir Barcelona í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum á morgun. Staðan er jöfn í einvíginu eftir að Lamine Yamal jafnaði úr vítaspyrnu í blálokin á St. James' Park.
Liðin mættust á St. James' Park í deildarkeppninni þar sem Barcelona vann 2-1 sigur. Eddie Howe hefur verið gagnrýndur á tímabilinu en Kieran Trippier sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leikinn í dag og varði stjórann.

„Við unnum enska deildabikarinn fyrir ári síðan. Ég loka fyrir gagnrýnina, sérstaklega í garð stjórans. Þetta fer inn um annað eyrað og út um hitt. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og það sem hann hefur gert fyrir félagið er merkilegt," sagði Trippier.
„Ég hefði aldrei trúað því að við myndum spila í Meistaradeildinni síðan ég kom. Við höfum komist í Meistaradeildina tvisvar og tvisvar í bikarúrslitum. Við megum ekki gleyma því hversu langt við höfum komist á stuttum tíma. Mikilvægast er að við höfum áunnið okkur réttinn til að vera hér."
Athugasemdir