Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 20:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Stórkostleg endurkoma hjá Sporting og ævintýri Bodö/Glimt lokið
Mynd: EPA
Sporting 5 - 0 Bodo-Glimt
1-0 Goncalo Inacio ('34 )
2-0 Pedro Goncalves ('61 )
3-0 Luis Suarez ('78 , víti)
4-0 Maximiliano Araujo ('92 )
5-0 Rafael Nel ('120 )

Spútniklið Meistaradeildarinnar, Bodö/Glimt, var með 3-0 forystu gegn Sporting eftir frábæran sigur á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum.

Liðin mættust í Portúgal í kvöld og heimamenn mættu ákveðnir til leiks. Þeir óðu í færum og brutu loksins ísinn eftir rúmlega hálftíma leik þegar Goncalo Ignacio skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Trincao.

Bodö/Glimt komst betur inn í leikinn og Odin Björtuft var nálægt því að jafna metin en skallaði boltann í slána undir lok fyrri hálfleiks.

Bæði lið fengu góð færi í upphafi seinni hálfleiks en Sporting komst í tveggja marka forystu eftir klukkutíma leik þegar Pedro Goncalves skoraði með skoti úr teignum.

Sporting hélt áfram að reyna skora þriðja markið og koma leiknum í framlengingu í það minnsta. Það tókst þegar Fredrik Björkan fékk boltann í höndina inn í teig og vítaspyrna dæmd. Luis Suarez fór á punktinn og skoraði og jafnaði metin í einvíginu.

Maximiliano Araujo kom Sporting yfir í einvíginu þegar hann skoraði strax í upphafi framlengingarinnar. Það trylltist síðan allt undir lokin þegar Rafael Nel skoraði og tryggði Sporting áfram. Stórkostleg endurkoma hjá portúgalska liðinu.
Athugasemdir
banner
banner