Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Tiltekt framundan í leikmannahópi Real Madrid
Real Madrid er sagt vera tilbúið að hlusta á tilboð í Eduardo Camavinga yfir 50 milljónum evra.
Real Madrid er sagt vera tilbúið að hlusta á tilboð í Eduardo Camavinga yfir 50 milljónum evra.
Mynd: EPA
Dani Carvajal.
Dani Carvajal.
Mynd: EPA
Bild segir að Real Madrid sé að plana mikla endurnýjun á leikmannahópi sínum og allt að sex nöfn í aðalliðinu gætu yfirgefið félagið.

Þetta hefur verið ansi stormasamt tímabil og Xabi Alonso var rekinn í janúar. Liðið er sem stendur fjórum stigum á eftir Barcelona og féll á niðurlægjandi hátt út úr bikarnum gegn Albacete.

Alvaro Arbeloa tók við af Alonso og hafa úrslitin verið misjöfn undir hans stjórn. Liðið vann þó glæstan 3-0 sigur gegn Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Austurríski varnarmaðurinn David Alaba er fyrstur nefndur af þeim leikmönnum sem gætu farið í sumar. Hann er 33 ára og samningur hans rennur út í sumar en hann hefur talsvert verið á meiðslalistanum síðustu ár. Talið er að ákvörðun um að losa hann hafi þegar verið tekin.

Miðvörðurinn Antonio Rudiger er einnig líklegur til að fara í sumar en sú staða gæti breyst. Hann hefur unnið sig til baa í liðið og skoraði í 4-1 sigri gegn Elche á laugardag.

Samningur hægri bakvarðarins sigursæla Dani Carvajal rennur einnig út í sumar og hann hefur mikið þurft að verma varamannabekkinn.

Áhugaverðasta nafnið sem er nefnt er franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga. Þessi 23 ára Frakki var talinn framtíðarstjarna Real Madrid en sagt er að félagið sé tilbúið að hlusta á tilboð og ekki vantar áhugann. Í slúðurpakkanum í morgun var hann orðaður við Liverpool.

Hin tvö nöfnin sem blaðið nefnir og gætu farið eru Ferland Mendy og Fran Garcia
Athugasemdir
banner
banner