Lens 3 - 2 Toulouse
0-1 Cristian Casseres Jr. ('6 )
0-2 Seny Koumbassa ('13 )
1-2 Saud Abdulhamid ('61 )
2-2 Adrien Thomasson ('67 )
3-2 Ismaelo Ganiou ('90 )
Rautt spjald: Yann Gboho, Toulouse ('17)
0-1 Cristian Casseres Jr. ('6 )
0-2 Seny Koumbassa ('13 )
1-2 Saud Abdulhamid ('61 )
2-2 Adrien Thomasson ('67 )
3-2 Ismaelo Ganiou ('90 )
Rautt spjald: Yann Gboho, Toulouse ('17)
Lens er einu stigi á eftir Paris Saint-Germain í titilbaráttunni í Frakklandi eftir svakalega skothríð í 3-2 sigri á Toulouse á heimavelli í kvöld.
Heimamenn í Lens lentu tveimur mörkum undir á tæpum stundarfjórðungi. Cristian Casseres Jr. skoraði á 6. mínútu og Seny Koumbassa sjö mínútum síðar.
Yann Gboho, leikmaður Toulouse, sá rauða spjaldið á 17. mínútu og gátu gestirnir varla andað eftir það.
Lens minnkaði muninn á 61. mínútu með marki Saud Abdulhamid og jöfnuðu þeir síðan metin sex mínútum síðar með marki franska leikmannsins Adrien Thomasson.
Það var síðan í 42. tilraun Lens sem sigurmarkið kom er Ismaelo Ganiou stangaði hornspyrnu Andrija Bulatovic í netið. Toulouse grátlega nálægt því að halda út en eðlilegt að þeir hafi verið alveg búnir á því eftir endalausar árásir Lens-manna.
Lens er í öðru sæti deildarinnar með 62 stig, einu stigi minna en PSG sem á tvo leiki til góða. Toulouse er í 10. sæti með 37 stig.


