Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   fös 17. apríl 2026 20:58
Daníel Smári Magnússon
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Haddi var sásttur með leik sinna manna þrátt fyrir tapið gegn Íslandsmeisturunum.
Haddi var sásttur með leik sinna manna þrátt fyrir tapið gegn Íslandsmeisturunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara svolítið svekktur, vegna þess að mér fannst við spila góðan leik. Mér fannst við taktískt mjög flottir og mér fannst þeir eiga erfitt með að skapa eitthvað á móti okkur. Þeir eru mjög sterkir í föstum leikatriðum og voru svona að ná sköllum þar og í rauninni fáum við tvö góð færi. Danijel kemst hérna tveir á einn og klikkar ein þversending og svo í seinni hálfleik kemst Kári í flotta stöðu þannig að mér fannst okkar leikur ganga upp að miklu leyti,'' sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 0-2 tap gegn Íslandsmeisturum Víkings R. í Bestu-deild karla í kvöld.


Lestu um leikinn: KA 0 -  2 Víkingur R.

Hann hélt áfram: „Ég veit ekki hvort að þetta sé víti eða ekki. Þetta var stórfurðulegt móment. Markmaðurinn okkar meiðist og þeir droppa boltanum niður, bara ein sending og kominn einn í gegn. Ég veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki, það er það sennilega bara. Við sofnum í eina sekúndu og alvöru lið, þau nýta sér það oft og refsa. Klaufalegt atriði sem að mér fannst einhvernveginn breyta leiknum. Þegar við lendum undir þá var þetta náttúrulega erfitt og svo skora þeir úr föstu leikatriði,'' sagði Hallgrímur.

Stigasöfnun KA verður ekki öllu verri eftir fyrstu tvo leiki mótsins, núll talsins - en þó hefur spilamennska liðsins gefið KA fólki ákveðna ástæðu til bjartsýni, að mati fréttaritara.

„Já, sammála þér. Við erum bara á mjög flottum stað. Við erum búnir að fá leikmenn seint inn, leikmenn sem hafa ekki verið að spila í sínum liðum og það vita það allir sem að þekkja vel til fótbolta að það tekur tíma að koma sér í alvöru fótboltastand. Það tekur tíma að kynnast nýrri taktík, nýju landi. Þessi tvö lið eru búin að hafa sína menn í held ég 5-6 mánuði á æfingum, en við kannski marga í nokkrar vikur eða nokkra daga jafnvel! Svo að mér finnst við vera á flottum stað, líta vel út og finnst við skemmtilegir. Alvöru "attitude" og ég er ánægður með strákana. Mér fannst ekki sanngjarnt að við töpuðum fyrir Stjörnunni, dæmt af okkur löglegt mark og í dag töpum við á móti firnasterku liði þar sem að við stóðum okkur vel. Þannig að það er enginn skjálfti í okkur KA mönnum þó að við séum með núll stig eftir þessa tvo mótherja,'' sagði Hallgrímur.

Mark dæmt af í fyrstu umferð og furðuleg atburðarrás sem leiðir til vítaspyrnudóms - svíða ekki svona hlutir?

„Auðvitað svíður dómaramistök, en þeir eru að reyna að gera sitt besta. Í dag er þetta kannski meira við sjálfir sem að hefðum átt að vera tilbúnir, en það eru lítil móment í fótbotaleikjum skipta máli og því miður þá hefur þetta verið aðeins á móti okkur núna. En eins og ég segi, við erum bara mjög ánægðir með hópinn og við erum mjög ánægðir með frammistöðurnar. Það er frábær stemning í hópnum og bara allsstaðar í kring. Ég hef engar áhyggjur af því, þetta er langt mót og stigin munu koma og við stefnum að því að gera mjög vel í sumar og það hefur ekkert breyst,'' sagði Hallgrímur Jónasson.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.


Slapp
banner
banner