Uppátæki Habib Beye, stjóra Marseille, að láta leikmenn gista á æfingasvæði félagsins virðist ekki fara vel í leikmenn liðsins.
Félagið hefur tekið þá ákvörðun að Pierre-Emerick Aubameyang, framherji liðsins, verði ekki með gegn Le Havre í frönsku deildinni á morgun eftir að franski framherjinn lét öllum illum látum á æfingasvæðinu.

Franski miðillinn L'Equipe greinir frá því að Aubameyang, ásamt nokkrum öðrum leikmönnum, hafi verið með mikil læti á fimmtudagskvöldið.
Hann hafi leitt hóp tíu leikmanna sem gengu á milli herbergja sem endaði með því að slökkvitæki var notað til að úða á Bob Tahri, stjórnarmeðlim félagsins, rúmið hans og eignir.
Marseille hefur verið í miklum vandræðum á tímabilinu en liðið er í sjöunda sæti frönsku deildarinnar og hefur aðeins unnið einn leik síðan 13. maí. Meistaradeildarvonirnar hafa fuðrað upp.