Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   lau 09. maí 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM í hættu hjá Davies
Mynd: EPA
Kanadamaðurinn Alphonso Davies á það á hættu að missa af HM vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Bayern gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Davies meiddist aftan í læri og mun ekki spila meira með Bayern en þýska félagið segir að hann verði frá næstu vikurnar.

Hann vonast að sjálfsögðu eftir því að vera í landsliðshópi Kanada á HM sem fram fer í heimalandinu. Liðið mætir Bosníu í fyrsta leik 12. júní. Kanadíska fótboltasambandið sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar meiðslanna.

„Við erum í nánum samskiptum við Alphonso og verðum áfram í sambandi við læknateymi Bayern eftir þetta bakslag. VIð einbeitum okkur að því að styðja hann í bataferlinu og veita honum allar tiltækar auðlindir, þar á meðal sérhæfða þekkingu á mjúkvefjum, til að veita honum bestu mögulegu leið til að ná fullum bata fyrir HM.“
Slapp
banner
banner