Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 22:44
Brynjar Ingi Erluson
Marco Rose tekur við Bournemouth í sumar
Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Marco Rose tekur við Bournemouth af Andoni Iraola í sumar en þetta fullyrðir ítalski fréttamaðurinn Fabrizio Romano á X í kvöld.

Á dögunum var greint frá því að þetta verður síðasta tímabil Iraola með Bournemouth, en samningur hans rennur út eftir leiktíðina og vildi hann ekki framlengja.

Hann hefur ná eftirtektarverðum árangri með Bournemouth síðan hann tók við liðinu árið 2023 en nú er komið að kveðjustund og hefur félagið fundið arftaka hans.

Það er Marco Rose, fyrrum þjálfari Borussia Dortmund, Mönchengladbach og RB Leipzig í Þýskalandi.

Rose þjálfaði Leipzig frá 2022 til 2025 þar sem hann varð bikarmeistari einu sinni.

Romano segir Bournemouth hafa náð samkomulagi Rose og verður gengið frá samningum á næstu dögum.

Þjóðverjinn hefur einnig stýrt RB Salzburg í Austurríki þar sem hann vann deildina tvö ár í röð.


Slapp
banner