Cole Palmer, leikmaður Chelsea á Englandi, er ekki að hugsa sér til hreyfings í sumar og segir að eigendur félagsins hafi lofað því að styrkja hópinn verulega í sumar.
Framtíð Palmer hefur verið rædd síðustu mánuði þar sem Manchester United er sagt ætla að reyna við hann.
Palmer, sem hefur gegnt lykilhlutverki hjá Chelsea síðustu ár, segist ekki vera að íhuga það að fara frá Chelsea.
„Manchester er heimili mitt. Öll fjölskyldan býr þar, en ég sakna þess ekki að vera þar. Ég er ekki með nein áform um að fara frá Chelsea,“ sagði Palmer.
Eigendurnir funduðu með leikmönnum og tjáðu þeim að þeir ætli sér að styrkja hópinn í sumarglugganum til þess að koma Chelsea aftur í fremstu röð.
„Ef við náum Meistaradeildarsæti þá kemur það okkur í góða stöðu til að kaupa þá leikmenn sem við þurfum. Við töluðum við eigendurna og þeir eru vissir um leikmennina sem munu gera það sem þarf til að koma okkur ofar.“
Liam Rosenior tók við Chelsea í upphafi árs af Enzo Maresca, en úrslitin hafa ekki verið að falla með liðinu og gæti hann fengið sparkið ef honum mistekst að koma Chelsea í Meistaradeildina, en Palmer segist styðja hann heilshugar.
„Stjórinn er góður og þegar hann mun eiga almennilegt undirbúningstímabil og koma hugmyndafræði sinni áleiðis þá munu allir sjá að hann er topp þjálfari,“ sagði Palmer.


