Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   mið 18. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Matthías Daði hjá ÍA út 2028
Mynd: Aðsend
Matthías Daði Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út tímabilið 2028.

Matthías Daði er sóknarmaður, fæddur árið 2006, sem getur leyst ýmsar stöður framarlega á vellinum.

Hann var á láni hjá Kára á síðustu leiktíð og skoraði sex mörk í 19 leikjum. Hann skoraði þá 11 mörk í 10 leikjum fyrir 2. flokk félagsins.

„Við bindum miklar vonir við að Matthías Daði haldi áfram að vaxa sem leikmaður innan herbúða félagsins," segir í tilkynningu félagsins.
Athugasemdir
banner