Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann töpuðu fjórða deildarleiknum á tímabilinu er það laut í lægra haldi fyrir Noregsmeisturum Viking, 3-2, í dag.
Tímabilið hefur ekki farið vel af stað hjá Brann sem er rétt fyrir ofan fallsvæðið eftir fimm umferðir.
Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði hjá Brann en Kristall Máni Ingason kom inn á í leiknum. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru ekki með vegna meiðsla.
Það hefur ekki alveg gengið jafn vel og á síðustu leiktíð, en liðið hefur aðeins náð í einn sigur á tímabilinu. Þátttaka liðsins í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar gæti spilað einhverja rullu því það hefur líka verið smá ryð í Bodö/Glimt sem fór alla leið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Brann er í 12. sæti eftir tapið í dag með 3 stig á meðan Viking er í öðru sæti með 12 stig. Hilmir Rafn Mikaelsson var ónotaður varamaður hjá Viking.
Hjörtur Hermannsson var í vörninni hjá Volos sem tapaði fyrir Aris, 3-2, í Sambandsdeildarriðli grísku úrvalsdeildarinnar á meðan Hörður Björgvin Magnússon sat á varamannabekknum hjá Levadiakos sem tapaði fyrir OFI Crete, 2-0, á Krít.
Levadiakos er á toppnum í riðlinum með 22 stig þegar fjórir leikir eru eftir af umspilinu. Það lið sem hafnar í efsta sæti umspilsins mun fara í Sambandsdeildina, nema Crete takist að vinna PAOK í bikarúrslitum um næstu helgi.
Nóel Atli Arnórsson kom inn af bekknum hjá Álaborg sem vann 3-1 sigur á Aarhus Fremad í fallriðli dönsku B-deildarinnar. Ólafur Hjaltason var í byrjunarliði Fremad. Álaborg er í efsta sæti riðilsins með 37 stig en Fremad í þriðja sætinu með 30 stig.

