Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 21:35
Brynjar Ingi Erluson
Carrick: Stórkostleg frammistaða
Michael Carrick
Michael Carrick
Mynd: EPA
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, var í skýjunum með frammistöðu liðsins í 1-0 sigrinum á Chelsea á Stamford Bridge í kvöld.

Matheus Cunha og Bruno Fernandes bjuggu til sigurmark United undir lok fyrri hálfleiks sem var átjánda stoðsending Fernandes í deildinni á þessu tímabili.

Þetta var það risastórt í baráttu United um að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

„Þetta var risastór sigur fyrir okkur. Frammistaðan var stórkostleg og að koma hingað og halda hreinu, og síðan verjast eins og við gerðum er bara stórkostlegt,“ sagði Carrick.

Fernandes er að eiga frábært tímabil í United-treyjunni og hrósaði Carrick honum í hástert eftir leik.

„Áhrif hans hafa verið okkur ótrúlega mikilvæg í langan tíma. Hann er þarna á stóru augnablikunum og í stóru leikjunum. Það er ástæða fyrir því að hann er fyrirliði liðsins. Bruno er með stóran persónuleika, nærveru og mikil leiðtogi.“

Carrick segist ekki vera að pæla í liðunum sem eru á eftir United heldur stefnir hann hærra með liðið.

„Við viljum ekki líta aftur um öxl heldur viljum við bæta okkur og horfa fram veginn. Við erum enn komnir nógu hátt því við viljum fara hærra, en þetta var risasigur og eitthvað sem stuðningsmennirnir geta notið,“ sagði Carrick.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
11 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner