Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 16:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Góður sigur hjá Loga og Túfa
Logi Hrafn Róbertsson
Logi Hrafn Róbertsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Logi Hrafn Róbertsson var í byrjunarliðinu hjá Srdjan Tufegdzic þegar Varnamo vann 1-0 sigur á Snadviken í 3. umferð í næst efstu deild í Svíþjóð í dag.

Varnamo steinlá 6-0 gegn Norrkoping í fyrstu umferð en hefur unnið hina tvo og er í 2. sæti á eftir Norrköping sem á leik til góða.

Kolbeinn Þórðarson spilaði klukkutíma þegar Gautaborg gerði 1-1 jafntefli gegn Halmstad í efstu deild í Svíþjóð. Hlynur Freyr Karlsson var ónotaður varamaður í 3-0 tapi Brommapojkarna gegn Mjallby. Gautaborg er með eitt stig eftir þrjár umferðri en Brommapojkarna er með tvö stig.

Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Larissa sem tapaði 3-2 gegn Atromitos í fallbaráttunni í grísku deildinni. Larissa er í 12. sæti með 23 stig, stigi frá fallsæti þegar sjö leikir eru eftir.

Jason Daði Svanþórsson var ekki í leikmannahópi Grimsby þegar liðið vann dýrmætan 4-1 sigur á Gillingham í ensku D-deildinni. Grimsby er tveimur stigum frá umspilssæti þegar liðið á þrjá leiki eftir en liðið á leik til góða á liðin í kringum sig.

Stockport gerði grátlegt 3-3 jafntefli gegn Exeter í C-deildinni þar sem jöfnunarmark Exeter kom í blálokin. Benoný Breki Andrésson, leikmaður Stockport er á meiðslalistanum. Stockport er í 5. sæti með 71 stig og er í góðri stöðu í baráttunni um umspilssæti.
Slapp
banner