Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   lau 18. apríl 2026 23:29
Brynjar Ingi Erluson
„Gott að hafa eitthvað að gera, annars hefði ég frosið til dauða“
Eimskip
Hannah Hampton var frábær í marki Englendinga
Hannah Hampton var frábær í marki Englendinga
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hannah Hampton, markvörður Englendinga, átti stórleik í 1-0 sigrinum á Íslandi á Laugardalsvelli í dag en hægt er að fullyrða að án hennar hefði England tapað leiknum.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 England

Enska liðið var mun betra í fyrri hálfleiknum og gat skorað mörg mörk, en lét eitt duga.

Í þeim síðari sótti íslenska liðið án afláts og skapaði sér urmul af færum, en Hampton sá við öllu. Hún átti frábærar vörslur frá Söndru Maríu Jessen og Alexöndru Jóhannsdóttur.

Hampton sagðist vera glöð með að geta hjálpað til.

„Þetta er starfslýsingin mín, ekki satt? Við gerum þetta sem lið og ég get ekki verið sú sem skorar mörkin, en ég get komið í veg fyrir þau.“

„Við vinnum sem liðið og það er það sem við stærum okkur af. Við erum þéttur hópur. Afgreiðslan hjá Russo var mjög góð þannig ég þurfti að gera vel á hinum enda vallarins.“

„Þegar allt kemur til alls er þetta frekar einfaldur leikur, en annars er ég bara glöð að geta verið með annars hefði ég frosið til dauða.“

„Ég er alltaf klár í að fórna líkama mínum fyrir landsliðið,“
sagði Hampton.
Slapp
banner