Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Adam Wharton, Yoane Wissa, Anthony Gordon, Jurgen Klopp og fleiri koma við sögu.
Liverpool hefur blandað sér í kapphlaupið gegn Man Utd um enska miðjumanninn Adam Wharton (22), leikmann Crystal Palace, en félaið vill fá að minnsta kosti 80 milljónir punda fyrir hann. (Talksport)
Tottenham hefur náð munnlegu samkomulagi við argentíska varnarmanninn Marcos Senesi, 28, umað hann gangi til liðs við félagið eftir að samningur hans við Bournemouth rennur út í sumar. Það fer þó eftir því hvort Spurs nái að halda sæti sínu í deildinni. (Talksport)
Newcastle er tilbúið að hlusta á tilboð í Yoane Wissa, 29, þrátt fyrir að félagið borgaði Brentford 50 milljónir punda fyrir hann síðasta sumar. (The I)
Arsenal hefur áhuga á hinum 16 ára gamla Jeremy Monga, leikmanni Leicester City. (Telegraph)
Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, kemur ekki til greina sem næsti stjóri Real Madrid. (El Chiriguito)
Newcastle telur að Bayern Munchen hafi mikinn áhuga á Anthony Gordon, 25, en enska félagið vill fá um 80 milljónir punda fyrir Englendinginn. (The I)
Konstantinos Mavropanos, miðvörður West Ham, mun yfirgefa félagið í sumar. Hann er á óskalista Dortmund en þýska félagið hefur áhyggjur af verðmiðanum. (Florian Plettenberg)
David Alaba, 33, mun yfirgefa Real Madrid þegar samningur Austurríkismannsins við félagið rennur út í sumar (Fabrizio Romano)
Dani Ceballos, 29, miðjumaður Real Madrid, er á óskalista Ajax. (AS)
Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern, vill að markvörðurinn Manuel Neuer, 40, verði hjá félaginu í eitt ár í viðbót til að hjálpa til við að þjálfa Jonas Urbig, 22. (Sky Sports í Þýskalandi)


