Lionel Messi skoraði tvö mörk og tryggði Inter Miami 3-2 sigur á Colorado Rapids í MLS-deildinni í kvöld.
Miami-liðið var að spila sinn fyrsta leik undir nýjum þjálfara, en 'Guðfaðir' Messi, Guillermo Hoyos, tók við liðinu eftir að Javier Mascherano sagði starfi sínu lausu vegna persónulegra ástæðna.
Messi skoraði strax á 18. mínútu leiksins með marki úr vítaspyrnu og gerði German Berterame annað markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Rafael Navarro og Darren Yapi jöfnuðu metin fyrir Colorado með fjögurra mínútna millibili áður en Messi gerði sigurmarkið með laglegri afgreiðslu á 79. mínútu.
Það var sjöunda deildarmark Messi á tímabilinu en það kom Inter Miami upp í annað sæti Austur-deildarinnar með 15 stig, aðeins stigi frá toppliði Nashville.
MESSI MAGIC AT MILE HIGH! ???? pic.twitter.com/cJaO56dDhI
— Major League Soccer (@MLS) April 18, 2026


