Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   lau 18. apríl 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Ráðleggur Slot að sækja Lewandowski - „Gæti verið til í þessa áskorun“
Robert Lewandowski
Robert Lewandowski
Mynd: EPA
Joe Cole segir Slot að sækja Lewandowski
Joe Cole segir Slot að sækja Lewandowski
Mynd:
Sparkspekingurinn Joe Cole vill að Liverpool reyni að fá pólska framherjann Robert Lewandowski til félagsins í sumar til að fylla skarð Hugo Ekitike sem verður frá næsta árið.

Ekitike sleit hásin í leik Liverpool gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í vikunni og mun hann ekki spila aftur fyrir félagið á næstunni.

Hásinaslit eru mismunandi eftir mönnum en oftast er þetta í kringum átta til tólf mánuðir. Það er því morgunljóst að Liverpool mun þurfa framherja í sumar, en Cole er kominn með hinn fullkomna kost fyrir Arne Slot.

„Ef Arne Slot heldur starfi sínu hjá Liverpool þá verður hann að sækja annan framherja. Þú þarft einhvern til að koma inn og hjálpa með álagið á meðan Ekitike er frá, sérstaklega ef þeir komast í Meistaradeildina. Þetta verður erfið leit hjá þeim.“

„Við gætum verið að sjá þá finna reynslumiklan leikmann því þú getur ekki farið og keypt einhvern sem er á hátindi ferilsins sem á að berjast við Isak og síðan Ekitike þegar hann kemur til baka.“

„Robert Lewandowski er nafn sem kemur upp í hausinn. Hann er 37 ára gamall og gæti verið til í þessa áskorun. Hann heldur að hann sé enn betri en Isak og geti komist í liðið. Hann gæti auðveldlega spilað 30 leiki.“

„Það er bara þannig eða félagið eyði góðri summu í spennandi táning. Þú ert samt að veðja rosalega á það hvort þeir séu nógu góðir til þess að vera Isak til halds og trausts. Þetta verður alltaf erfið ákvörðun hjá Liverpool, sama hvora leiðina þeir munu fara, en þeir verða samt að ná í einhvern,“
sagði Cole.

Lewandowski er á mála hjá Barcelona en hann verður samningslaus í sumar og mun líklega leita annað. Á þessum fjórum árum sem hann hefur spilað með Barcelona hefur hann skorað 118 mörk í 187 leikjum og einu sinni verið markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar.
Slapp
banner
banner