Matheus Cunha var að koma Manchester United í 1-0 forystu gegn Chelsea á Stamford Bridge en markið kom undir lok fyrri hálfleiks.
Bruno Fernandes fékk boltann á hægri vængnum, náði að hrista af sér varnarmenn Chelsea áður en hann kom boltanum inn á teiginn og þar kom Cunha á ferðinni og hamraði boltanum í netið.
Þetta var 18. stoðsending Fernandes í deildinni og er hann aðeins tveimur frá því að jafna met Kevin De Bruyne og Thierry Henry.
Sjáðu markið hér
Ef leikurinn endar svona mun Man Utd fara í 58 stig í þriðja sætinu og nánast tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð á meðan draumur Chelsea um að komast þangað er að breytast í fjarlægan draum.




