Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Stefán átti góðan leik í jafntefli gegn toppliðinu
Stefán Teitur var flottur með Hannover í kvöld
Stefán Teitur var flottur með Hannover í kvöld
Mynd: Hannover 96
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var með bestu mönnum Hannover í 1-1 jafnteflinu gegn toppliði Paderborn í þýsku B-deildinni í kvöld.

Stefán er orðinn fastamaður og einn af fyrstu mönnum á blað í lið Hannover síðan hann kom frá Preston í vetrarglugganum.

Hann meiddist eftir síðasta leik Hannover en náði að jafna sig í tæka tíð fyrir stórslaginn gegn Paderborn.

FotMob gefur Stefáni 7 í einkunn en aðeins tveir liðsfélagar hans voru með hærri einkunn í leiknum.

Sterk frammistaða hjá landsliðsmanninum og Hannover sem er í 4. sæti deildarinnar með 54 stig á meðan Paderborn er á toppnum með 58 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Slapp
banner
banner