PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 12:53
Brynjar Ingi Erluson
Á sexfalt lægri launum en De Zerbi
Mynd: Marseille
Habib Beye, nýr þjálfari Marseille í Frakklandi, er að reynast mjög hagstæður kostur fyrir félagið en hann er á sexfalt lægri launum en forveri hans, Roberto De Zerbi, sem yfirgaf félagið fyrr í þessum mánuði.

Beye, sem lék með Newcastle og Marseille á ferli sínum, var rekinn frá Rennes í síðustu viku og ráðinn um leið til Marseille í stað De Zerbi sem hafði verið að sækja góð úrslit síðustu vikur.

De Zerbi var að þéna 540 þúsund evrur mánaðarlega hjá Marseille en Beye samþykkti að taka við liðinu fyrir töluvert lægri upphæð eða aðeins 90 þúsund evrur á mánuði.

Beye, sem er fæddur í Frakklandi, lék 45 A-landsleiki með Senegal frá 2001 til 2008.

Hann tók við Rauðu stjörnunni sem var þá í frönsku C-deildinni árið 2021 og stýrði því upp í B-deildina árið 2024 áður en hann rann út á samningi. Í byrjun árs 2025 tók hann við Rennes þar sem hann þjálfaði í ár áður en hann var látinn fara.

Fyrsti leikur hans með Marseille verður í kvöld er liðið heimsækir Brest í frönsku deildinni.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner