Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 20. febrúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Tudor kastað beint í djúpu laugina
Igor Tudor stýrir sínum fyrsta leik gegn Arsenal
Igor Tudor stýrir sínum fyrsta leik gegn Arsenal
Mynd: EPA
Um helgina hefst 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en stærsti leikurinn er Norður-Lundúnaslagur Tottenham og Arsenal á sunnudag.

Umferðin hefst á morgun klukkan 15:00. Hákon Rafn Valdimarsson og félagar í Brentford taka á móti Brighton, Astona Villa fær Leeds í heimsókn og þá spilar heims- og Sambandsdeildarmeistarar Chelsea við nýliða Burnley.

Klukkan 17:30 er leikur West Ham og Bournemouth áður en Manchester City fær tækifærið til þessa að saxa enn frekar á forystu Arsenal sem tapaði stigum gegn Úlfunum í miðri viku.

Á sunnudag eru fjórir leikir. Crystal Palace tekur á móti Úlfunum klukkan 14:00 en á sama tíma mætast Sunderland og Fulham, og þá heimsækir Liverpool lið Nottingham Forest sem verður fyrsti deildarleikur Forest undir Vitor Pereira.

Króatíski þjálfarinn Igor Tudor tók við Tottenham á dögunum en honum er kastað beint í djúpu laugina. Hann mun stýra sínum fyrsta leik í Norður-Lundúnaslag gegn Arsenal klukkan 16:30.

Arsenal hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö deildarleikjum og gæti tap gegn grönnunum sett allt í uppnám.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
15:00 Brentford - Brighton
15:00 Aston Villa - Leeds
15:00 Chelsea - Burnley
17:30 West Ham - Bournemouth
20:00 Man City - Newcastle

Sunnudagur:
14:00 Crystal Palace - Wolves
14:00 Sunderland - Fulham
14:00 Nott. Forest - Liverpool
16:30 Tottenham - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner