Hallgrímur Mar Steingrímsson, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar síðustu ár, hefur framlengt samning sinn við KA út 2027 en félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Hallgrímur eða Grímsi eins og hann er iðulega kallaður er 35 ára sóknarmaður sem skoraði 13 mörk og gaf fimm stoðsendingar í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins á lokahófi KA og var á dögunum valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrir leikinn gegn Mexíkó sem fer fram 26. febrúar næstkomandi.
KA mun halda áfram að njóta krafta hans að minnsta kosti næstu tvö tímabilin sem er fagnaðarefni fyrir báða aðila, enda samstarfið verið gríðarlega farsælt.
Árið 2009 gekk hann í raðir félagsins frá Völsungi og lék þá eitt tímabili með Víkingi R áður en hann sneri aftur í KA.
Hann er markahæsti leikmaður í sögu félagsins 125 mörk og leikjahæstur með 378 leiki. Hann er einnig markahæstur með KA í Evrópu og á flesta Evrópuleiki. Sannkölluð goðsögn hjá félaginu.
Athugasemdir




